24.6.2008 | 18:30
Já já þetta var alger óþarfi !
Já það er nú með þennan prófkvíða minn að ég virðist hafa hann algjörlega að óþörfu
Ég fór sem sagt í próf í dag úr því sem ég á að hafa lært á þessu námskeiði, í að aka og vinna á lyftara. Og ég, eins og alltaf, búin að stressa mig svo mikið upp og hreint alveg klár á að ég falli og ekkert með 4,9 neitt heldur verði mér og allri ættinni til skammar En eins og alltaf líka hehehe
þá stóð ég mig með miklum sóma ég fór í gegnum þetta allt saman alveg villulaust og þá á ég við bæði í bókleg- og verklegpróf. Ég er náttúrulega alger snilli ég þarf bara að átta mig á því rétt áður en ég fer í prófin en ekki alltaf eftir á
Ólöf skrifaði í athugasemdirnar við síðustu færslu að hún man hvernig þetta var þegar ég tók meiraprófið á bíl, ég var gráti nær og skalf eins og hrísla, líkt og núna, en svo gékk allt vonum framar Það er kannski spurnig að fara næst á námskeið í að efla sjálfstraustið hehehe
Vona að þið hafið haft jafn góðan dag og ég
Um bloggið
Þóra Björk
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ekki ég... en til hamingju samt sæta
Ég hef tröllatrú á þér. Vissi að þú mundir standa þig snúlla.
Hlakka til á morgunn.
BLÓM!
Hulla Dan, 24.6.2008 kl. 19:43
Til hamingju snillinn minn. Auðvitað gastu þetta villulaust, það er ekki að spyrja að því. Þú verður orðin doktor í akstursfræðum ef þetta heldur svona áfram .
RAUÐAR RÓSIR OG KONFEKT! (ég varð að toppa Hullu)
Elísabet Sigurðardóttir, 24.6.2008 kl. 20:02
Hahhh þú hefur greinilega ekki heyrt um BLÓMIÐ
Búin að blogga um það.
Hulla Dan, 24.6.2008 kl. 20:17
Þið eruð yndislegar og ég gæti bara ekki komist af án ykkar
Love you ssssoooooo much
Þóra Björk Magnús, 24.6.2008 kl. 20:20
Love you sooooooooooo much 2.
Hulla Dan, 24.6.2008 kl. 20:35
Ooohhh ég alltaf að bulla einhverja vitleysu, var ekki búin að lesa bloggið þitt Hulla. Fannst þetta svo sniðug kveðja til Þóru, hélt að þú værir að gefa henni hugarblóm. Ég er að deyja úr hlátri hérna.
Love you gæs 2 sooooooooooooooo much
Elísabet Sigurðardóttir, 25.6.2008 kl. 23:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.