8.6.2008 | 00:19
Upprifjun !
Mikið finnst mér alltaf gaman að rifja upp minningar frá mínum unglings árum, ég hlustaði alla tíð mikið á tónlist og er það því algjör gullkista að hafa uppgötvað youtube þar getur maður fundið flest allt það sem maður hafði áhuga á og ég er bara ekki frá því að tónlist á þeim árum hafi á einhvern hátt verið betri en hún er í dag. Svo er auðvitað líka sá möguleiki fyrir hendi að ég sé hreinlega föst í fortíðinni híhí.
Nei ég held að það sé svolítið líkt með tónlist og ást . . . . . er ekki sagt að fyrsta ástin eigi sér sérstakan stað í hjarta manns
Ég fór í ferðalag til Þýskalands í maí ( segi ykkur frá því bráðlega ) og ég verða að segja að þjóðverjar eru fastir í tísku og tónlist frá níunda áratugnum, ég er nú ekki sérlega hrifin af tískunni frá þeim tíma en tónlistin hentar mínu skapferli hins vegar ákaflega vel
Jæja nú ætla ég að hætta þessu bulli og koma mér í ból enda klukkan að nálgast hálf þrjú að nóttu til
Góða nótt og vonandi sofið þið vært
Sæl að sinni Þóra Björk
Um bloggið
Þóra Björk
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mitt útvarp er fast á fm 93.2. Þýskstöð og BARA endalaust af æðislegri tónlist...
Sæl að sinni
Hulla Dan, 8.6.2008 kl. 08:13
Já Hulla mín ég held að við séum fastar á sömubylgjulengd
Eigið þið góðan dag
Þóra Björk Magnús, 8.6.2008 kl. 08:19
Hæbbs....reyndi að ná í þig um daginn en þú barasta svaraðir mér ekki reyni aftur seinna sæta...
Tillykke með nýja bloggsið, vona að sjái meira af þínu yndislífi...knúsi knús
Gyða litla í danaveldi (IP-tala skráð) 8.6.2008 kl. 15:29
Sæl elsku Gyða mín
Það er ekki von að ég svari þér ekki, mér tókst nefninlega að týna simanum og þar á meðal númerinu þínu
Ætlaði einmitt að fara að senda þér mail . . .. . . ég geri það á eftir
Þóra Björk Magnús, 8.6.2008 kl. 22:06
Það er yndislegt að hlusta á þessi gömlu góðu og rifja upp skemmtilegar, sorglegar, erfiðar, ömurlegar, geðveikar......minningar. Ótrúlegt hvað tónlistin stimplar inn stöðum og stundum, gæti ekki lifað án hennar.
Knúserí knús
Elísabet Sigurðardóttir, 8.6.2008 kl. 23:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.