Stresskast !!!

   Já nú er mín hreint ekki glöð er reyndar í kasti W00t

  Ég hef síðan ég var barn átt við köngurlóarfælni að stríða en hef með mikilli vinnu og þolinmæði tekist nokkuð vel að yfirvinna fælnina hægt og rólega, er komin þó nokkuð langt á leið til bata en á líka eftir nokkuð í land ennþá.

  Ég get til að mynda ekki tekið eldhúsbréf og hreinsað dauða köngurló upp með því, verð að nota flugnaspaða eða fægiskúffu eða álíka til þess. En mér tekst þó bæði að drepa þær og koma þeim í klósettið og sturta niður alveg alein og sjálf Wink

  En núna þegar ég ætlaði að koma mér í bólið áðan varð ég vör við eina nokkuð stóra og kolsvarta uppi undir lofti og ætlaði bara að drepa hana vopnuð flugnaspaðunum mínum og koma henni í klósettið og jú jú sturta niður á eftir.

  Hún var staðsett í fjærhorninu á herberginu svo ég varð að færa rúmið mitt til að hafa eitthvað til að standa á (nennti ekki fram að sækja stól) og haldið ekki að upp við vegginn bak við HÖFÐALAGIÐ  á rúminu hafi verið enn stærri og ekki bara ein heldur TVÆR að spóka sig þar. Þetta leist mér nú ekki á og þurfti smá stund til að ná hjartslættinum niður úr hættulegum hraða og róa mig til að ég fengi hreinlega ekki "panic attack" W00t 

  Nú nú þegar mér hafði tekist að róa mig nógu mikið niður til að drepa og fjarlægja þessi þrjú skrímsli úr svefnherberginu mínu taldi ég mig á að það væri þá betra að ég hefði fundið þær áður en ég lagðist upp í, og væri búin að fjarlægja þær !!!

   Svo ég lagðist upp í, ennþá með hjartaði í brókinni, og fór að strjúka kisunni minni til að róa mig  eftir þessi áföll og kemur þá ekki enn eitt kvikindið skríðandi YFIR RÚMIÐ MITT !!!   NEI ÞETTA VAR BARA OF MIKIÐ AÐ ÞVÍ GÓÐA

  Ég átti fullt í fangi með að fara ekki hreinlega að grenja mér varð svo um Crying  og vegna hversu seint er getur maður ekki hringt í neinn til að hugga sig svo ég tók á það ráð að skrifa mig frá þessu hérna og demba þessu öllu á ykkur greyjin mín Pinch

  Ég get hreinlega ekki hugsað mér að leggjast upp í rúmið mitt aftur svo ég verð að sofa í gestaherberginu í nótt ef það er eitthvað skárra. Ég hef heyrt það hjá fólki að það sé betra að hafa köngulærnar en flugurnar en ég er núna hreinlega á þeirri skoðun að ég hefði heldur viljað hafa herbergið fullt af myggi en þetta.

 

   Ég vona að þið eigið öll góða og friðsæla nótt Halo

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 já thær eru ótholandi thessar fjárans pøddur hægri vinstri...segi eins og thú..er komin langt i bata med fóbíuna,drep og thrif upp hægri vinstri...en ojbara..thegar thetta er bara komid í hópum og thad i svefnherberginu manns  ekki hissa ad thú hafir fengid flog... en vonandi ertu búin ad jafna thig núna

María Guðmundsdóttir, 4.8.2008 kl. 07:02

2 Smámynd: Hulla Dan

Já hvaða hálfviti kom með þau rök að væri betra að vera með kóngulær en flugur??? Og sá sem sagði að kóngulær væru svo góðar til að veiða flugur!!! Það er sko bara bláber lygi. Kónguló veiðir sér til matar og ein fluga dugar henni í 2 dag!!! Þannig að, belíf jú mí, þær eru ekki að gera gagn!!!!

Nú hreingerir þú allt svefnherbergið í dag eða kvöld, vopnuð ryksugu og svo úðarðu það með kóngulóar eitri á eftir.
Ég hata kóngulær.

Kveðja. Fýlu strumpur.

Hulla Dan, 4.8.2008 kl. 07:03

3 identicon

   María : já takk ég er búin að jafna mig og ótrúlegt en satt þá svaf ég bara nokkuð vel í nótt

   Hulla : já þú getur sko stólað á að það verður tekin tvöföld jólahreingerning á herberginu í kvöld, en það versta er að ég á ekki neitt almennilegt köngurlóareitur til að "sótthreinsa" það með

  Jæja ég verð víst að stinga af til vinnu  

     Njótið dagsins í dag hann kemur ekki aftur

Þóra Björk (IP-tala skráð) 4.8.2008 kl. 07:57

4 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Velkomin i bloggvina hópinn, ljufan. Ég rannsaka herbergið á hverju kvöldi áður en ég fer uppí, ég er skíthrædd við köngulær, veit held ég ekkert verra, en það er engin til að drepa þær nema ég, áður fyrr stóð ég á öskrinu(þegar ég átti kall) en nú verð ég að gera þennan fjanda sjálf og nota öll tól og tæki til að fara í stríð við þennan viðbjóð. Eigðu góða nótt án hryllíngsins

Kristín Gunnarsdóttir, 4.8.2008 kl. 20:13

5 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Bwahahaha .  Sorry, ég veit að þetta var ekkert fyndið en vá hvað ég sé þig í anda krúsídúllan mín. 

Ég hefði fengið hjartaáfall og taugaáfall og allt......

Lovjú hjarta

Elísabet Sigurðardóttir, 4.8.2008 kl. 22:40

6 Smámynd: Þóra Björk Magnús

   Kristín :  Takk fyrir það :)   já við verðum víst að takast á við allt of mikið sem fullorðið fólk . . . . . . .  eins og mann hlakkaði til að verða fullorðinn heheheh

   Ólöf :  já þú hlærð að mér snúllan mín en þú hefðir ekki náð að standa í lappirnar af hlátri hefðirðu verið hérna og séð mig skal ég þér segja . . . . .   það er auðvitað bara hlægjileg sjón að sjá konu (að verða fertug bráðum ) á brókinni einum fata, í baráttu við svona skrímli hehehe   sakna þín óhemju mikið

Þóra Björk Magnús, 5.8.2008 kl. 18:44

7 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Takk fyrir ad bjóda til bloggvinaáttu

Held ad tad sé einhver kóngulóafaraldur í gangi í heiminum. Búin ad heyra og sjá mikid um tær hér í DK og á Ísl. Sonurinn og tengdadóttirin hafa margar kóngulóasøgur ad segja úr sinni 18 vikna ferd um Asiu. Nú held ég ad tær séu ad reyna ad yfirtaka heiminn

Guðrún Þorleifs, 6.8.2008 kl. 07:12

8 Smámynd: Hulla Dan

OJJJ

Hulla Dan, 6.8.2008 kl. 11:48

9 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Kóngulær eru ekki spewnnandi en tær eiga heima í tessu  heimi eins og vidÉg reyndar bara ryksýg herbergin hornanna á milli og tær med tenann ófögnud.

Knús á tig mín kæra inn í gódann dag

Gudrún Hauksdótttir, 8.8.2008 kl. 05:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þóra Björk

Höfundur

Þóra Björk Magnús
Þóra Björk Magnús
Lítill útlendingur í Danaveldi :)
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...img_0322
  • 46eda39456c07[1]
  • 46eda3955b606[1]
  • 46eda3930fb89[1]
  • 46f94294935b7[1]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 240

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband